Haust Paper

Skilmálar og persónuvernd

Þessir skilmálar gilda um kaup á Dagbókinni 2027 í gegnum haustpaper.com/panta. Ensku útgáfuna kaupirðu á Amazon, og þá gilda skilmálar Amazon.

Seljandi

Nanna Kristín Tryggvadóttir, kt. 160387-2629
Sóleyjargata 23, 101 Reykjavík
Netfang: hello@haustpaper.com

Haust Paper er vörumerki seljanda.

Pöntun og greiðsla

Þegar þú pantar færðu pöntunarnúmer og greiðsluupplýsingar, bæði á skjánum og í tölvupósti. Greitt er með millifærslu. Pöntunin er staðfest þegar greiðslan hefur borist. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru endanleg verð.

Forsöluverð gildir um pantanir sem gerðar eru fyrir 1. desember 2026. Ef greiðsla hefur ekki borist innan 7 daga frá pöntun áskil ég mér rétt til að fella pöntunina niður.

Afhending

Bækurnar verða tilbúnar fyrstu vikuna í desember 2026. Greiddar pantanir eru sendar af stað eins fljótt og hægt er eftir það. Í boði er að sækja í Reykjavík án endurgjalds, að sækja á Dropp-afhendingarstað, að fá bókina senda heim á höfuðborgarsvæðinu með Dropp, eða að sækja hana á pósthús eða í Póstbox með Póstinum. Sendingarkostnaður kemur fram í pöntuninni.

Ég sendi aðeins innanlands. Ábyrgð á vörunni færist til kaupanda þegar hún hefur verið afhent.

14 daga skilaréttur

Þú getur hætt við kaupin og skilað bókinni innan 14 daga frá því að þú fékkst hana, án þess að gefa upp ástæðu. Láttu mig vita á hello@haustpaper.com og sendu bókina ónotaða og í sama ástandi til baka. Þú greiðir sendingarkostnað við skil.

Ég endurgreiði verð bókarinnar og upphaflegan sendingarkostnað innan 14 daga frá því að þú lætur vita, en má bíða með endurgreiðsluna þar til bókin hefur borist mér aftur.

Ef þú hættir við áður en bókin er send endurgreiði ég alla upphæðina.

Gallar

Ef bókin er gölluð, til dæmis vegna prentvillu eða skemmda í sendingu, skaltu láta mig vita sem fyrst. Þú færð þá nýtt eintak eða endurgreiðslu, eftir því sem þú kýst. Um kaupin gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga nr. 16/2016.

Persónuvernd

Til að afgreiða pöntun þarf ég nafn þitt, netfang, símanúmer og, ef bókin er send, heimilisfang eða Dropp-stað. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að afgreiða og afhenda pöntunina.

  • Pantanir eru vistaðar hjá Netlify, sem hýsir vefinn.
  • Greiðslupósturinn er sendur í gegnum MailerLite.
  • Dropp eða Pósturinn fá nafn, símanúmer og heimilisfang þegar bókin er send.

Ég sendi þér aðeins fréttir og annan póst ef þú hakar sérstaklega við það, og þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti.

Pöntunarupplýsingar eru geymdar eins lengi og lög um bókhald krefjast, en ekki lengur. Þú getur alltaf óskað eftir að fá að sjá upplýsingarnar um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, með því að skrifa á hello@haustpaper.com.

Ágreiningur

Um skilmálana gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur sem ekki leysist okkar á milli getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Síðast uppfært 16. nóvember 2026.