Íslensk útgáfa · Forpöntun
Dagbókin 2027, á íslensku
Falleg en einföld vikudagbók sem byrjar á heildarmyndinni, gefur pláss fyrir lífið eins og það er og biður þig aldrei um að vinna neitt upp. Gormuð og prentuð á Íslandi í litlu upplagi.
- Vikuopnur frá 28. desember 2026 til 2. janúar 2028, vikan byrjar á mánudegi
- Mánaðardagatöl á opnu, með nýju tungli og fullu tungli merktu
- Venjutafla fyrir þrjár venjur í hverjum mánuði
- Framtíðarsýn og markmiðasíður fyrir sex svið lífsins
- Mánaðarleg uppgjör og ársfjórðungslegt yfirlit
- Afmælisdagar, bækur ársins og dagatal fyrir 2028
- Gormuð: liggur flöt á borðinu og hægt að brjóta hana alveg aftur
- A5 (14,8 × 21 cm), kremlitaður pappír
Misstirðu úr viku? Byrjaðu bara aftur.
Takk fyrir pöntunina!
Pöntunarnúmerið þitt er .
Greiðsluupplýsingar
Upphæð:
Reikningur:
Kennitala:
Eigandi:
Skýring:
Ég sendi greiðsluupplýsingar á innan sólarhrings.
Þú færð þessar upplýsingar líka í tölvupósti á .
Bækurnar verða tilbúnar fyrstu vikuna í desember. Þín fer af stað um leið og greiðslan hefur borist.
Spurningar? Skrifaðu á hello@haustpaper.com.
Algengar spurningar
Hvenær fæ ég bókina?
Bækurnar verða tilbúnar fyrstu vikuna í desember. Ef þú pantar fyrir 15. desember nærðu henni fyrir jól.
Hvernig greiði ég?
Með millifærslu. Greiðsluupplýsingarnar birtast um leið og þú pantar og koma líka í tölvupósti. Bókin fer af stað þegar greiðslan hefur borist.
Hvað kostar dagbókin?
Forpöntunarverð er 4.900 kr. til 1. desember. Eftir það kostar hún 5.900 kr.
Get ég pantað ef ég er stödd eða staddur erlendis?
Já, þú getur pantað hvaðan sem er. Ég sendi aðeins innanlands, svo veldu heimilisfang á Íslandi, til dæmis hjá fjölskyldu. Ensku útgáfuna má líka kaupa á Amazon um allan heim.
Get ég sent hana beint sem gjöf?
Já. Settu nafn og heimilisfang viðtakandans í pöntunina og skrifaðu í athugasemdina að þetta sé gjöf. Þá fer enginn reikningur með bókinni.
Er þetta sama dagbók og á Amazon?
Já, sama dagbók og sama uppsetning, nema hér er hún á íslensku, gormuð og prentuð á Íslandi. Gormurinn gerir að verkum að hún liggur flöt á borðinu meðan þú skrifar.
Get ég pantað mörg eintök, til dæmis fyrir vinnustað?
Já. Fyrir fleiri en 10 eintök er best að skrifa á hello@haustpaper.com.